...áttu 40 ára brúðkaupsafmæli í gær, 1.ágúst.
Mamma og pabbi – 1. ágúst 2004Þau verða krúttlegra par með hverju árinu og í gær komum við systkinin, makar og barnabörnin "gömlu" hjónunum á óvart þegar við héldum veislu þeim til heiðurs heima hjá Steina bróður. Við vorum að sjálfsögðu öll stödd á Akureyri yfir versló og var bara alveg svakalega gaman. Hápunktur helgarinnar var þó áðurnefnt grillteiti en gaman er að geta þess að þar borðaði ég besta lambakjöt sem ég hef smakkað og drekkti mér loks (tvisvar) í besta desert ever a lá Stebbi mágur og co. Einhvern tíma þegar ég verð rík ætla ég að fylla sundlaug af volgri marssúkkulaðisósu (jafnvel smá appelsínusúkkulaði með) og stökkva nakin út í hana. Á bakkanum verða ótal ístegundir sem ég get svo borðað með sósunni. Grrrrr.....