föstudagur, ágúst 13, 2004

I love Rvk

Þetta veður er alveg ótrúlegt, en þó ekki jafnótrúlegt og fólkið sem hér býr. Við erum dásamleg! Hef skemmt mér vel í vinnunni síðustu daga við að fylgjast með mannlífinu í bænum sem verður mun líflegra þegar veðrið leikur svona við það. Það held ég að margur hafi hringt sig inn veikan í gær og fyrradag og notið blíðunnar, hehehe. Kæruleysislegt yfirbragð hefur líka einkennt borgarbúa sem hópast saman á öllum grasblettum bæjarins og sötra bjór í blíðunni en skilja svo allt ruslið eftir sig. Aðkoman á Austurvelli var víst til skammar eftir að stærstu hóparnir höfðu fært sig inn á barina í fyrrakvöld en það er þó ekki einungis við grasgestina að sakast því ruslatunnurnar voru allar orðnar troðfullar um miðjan dag. Egils eða einhverjir komu að gefa gosflöskur(sem ekki var svo pláss fyrir í fröken Ruslafötu) og allir hvort eð er orðnir svo slompaðir af bjórdrykkju og dasaðir af sólsting að þeir höfðu ekki rænu á að leita að ruslafötu. Túristarnir og aðrir gestir bæjarins sem vildu skoða ljósmyndasýninguna áttu fullt í fangi með að sviga fram hjá bjórdollum og öðru drasli. Ég skil ekki alveg af hverju Borgin bregst ekki við á svona degi og sendir eins og einn flokk úr Vinnuskólanum með svarta ruslapoka í miðbæinn. Fussumsvei. Ég vildi samt óska að það kæmu fleiri svona dagar á sumrin. Reykjavíkurmeyjar virðast allar hafa náð að finna Benidorm dressin sín (föt sem þær nota í útlöndum, helst á útlenskum ströndum) upp á háalofti og er einkennisbúningur kvenkyns borgarbúa (sem og kvenkyns "dreifara" býst ég við) minipils, toppur og sandalar og er þetta allt saman í pæjulegra mótinu. Ég er í fríi í dag og ætla að reyna að finna eitthvað sæmilega pæjó til að vera í stíl við hinar skvísurnar:) Góða helgi.

2 ummæli:

sArs sagði...

Heyr Heyr.
ég ætlaði að vera svaka náttúruvæn þarna og týndi rusl vina minna í poka...og þurfti bara að leggja hann í götuna við fröken ruslafötu. Hver veit hvað hafi orðið um pokann - kannski hefur einhver róni dottið um hann og sparkað honum uppá pósthús!? ég sef illa útaf þessu öllusaman....

Hildur sagði...

Já ég verð nú að segja það að nú fyrst held ég að Íslendingar skilji almennilega "suðræna leti" -þar sem við upplifum hana í okkur sjálfum á svona dögum.

En mér finnst við líka dásamleg!